Sit á kaffihúsi með Tinnslunni

Við Tinna ákváðum nú loksins að hittast á kaffihúsi, erum búnar að tala um það í ansi langan tíma svo finally fundum við tíma í það. Það er svolítið fyndið að fylgjast með Tinnu hérna fyrir framan mig í tölvunni, hún er svo nálægt skjánum að það er bara snilld að horfa á hana. Ég gæti trúað að þarna sé sjónin eitthvað að stríða henni.Cool Hún Tinna litla kardimommudropastelpan og stelpansemfílaraðlátaflengjasigstelapn.Wink Hér er sönnun fyrir því.Smile

http://youtube.com/watch?v=2fyeb_HBOCU

En hvað segið þið annars gott fólk? Ég er bara hress sko. Við Árni erum að fara austur þarnæstu helgi og vá hvað ég get ekki beðið.W00t Ég er að reyna að fá Tinnu til að kíkja með mér á djammið næstu helgi og shit, það ætlar að vera erfitt.Undecided Hún er vön að segja: JÁ, ÉG ER SKO TIL þegar ég spyr hana hvort hún vilji ekki kíkja út en já eins og ég skrifaði hér að ofan að þá ætlar það að vera eitthvað erfitt í þetta skiptið. Viljið þið fólk hjálpa mér að fá hana út? Bara spyr.Whistling Jæja, ég ætla að fara að skoða eitthvað meira hérna á netinu.

Ég skrifa fljótt aftur.

p.s endilega ekki gleyma hinni bloggsíðunni minni...urlið er: www.blog.central.is/kolla82


Síminn takk!

Jæja, þá er ennþá meiri ástæða fyrir að skipta yfir í símann eða jafnvel nova. Ég er orðin hundleið á vodafone, allavega hérna á Akureyri. Það er rosalega léleg þjónusta hérna og ég er alltaf að heyra það frá fleirum og fleirum.Angry Það er dónaskapur hjá þeim þarna og það er eins og það sé voða erfitt fyrir þau/þá að gera kúnnanum til geðs. Þetta er það sem ég fæ frá þeim allavega svo að ég er harðákveðin í að skipta um símafyrirtæki í staðin fyrir að væla hérna...hehehe.LoL


mbl.is Vodafone hækkar verð á símtölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ ER AÐ???????????

Hvað er að gerast með þetta andskotans helvítis bensín FOKKING verð? Ég held að málið sé bara að fara að flytja frá þessu ógeðslega landi.Angry  Ekki bara út af síhækkandi bensínverði, heldur mörgu öðru. T.d er alltaf kallt hérna, maður má ekki misstíga sig liggur við þá er komin svaka kjaftasaga um mann, fólk hérna er almennt dónalegt og ég gæti lengi talið upp hlutina sem eru að hérna í þessu landi. Ég hef lengi spáð í því að flytja til Spánar, ég skil ekki af hverju ég er ekki löngu farin...ég gæti ælt af pirring núna!!!Sick
mbl.is Bensínverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kona ársins

Þegar hægt er að kjósa um konu/mann ársins þá kýs ég hana að sjálfsögðu. Ég hugsa að ef ég myndi lenda í hennar stöðu einhverntímann að þá myndi ég gersamlega frjósa. Ég hef aldrei lært skyndihjálp...ég verð að fara að drífa mig í því. Maður veit aldrei hvort maður lendir í svona löguðu, það gæti gerst í dag. Ólöf, þú átt hrós skilið.


mbl.is Blés lífi í farþega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hahaha...

Djöfulsins stjörnustælar og ekkert annað. Álit mitt á þessari leik og söngkonu hefur minnkar ansi mikið. Þetta eru prímadonnu stælar af verstu gerð!Angry
mbl.is Mikill viðbúnaður á sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært. :)

Ég get ekki beðið eftir að Grey´s anatomy byrji. :) Er búin að bíða spennt eftir að þetta verkfall leysist út af þessum þætti. :)


mbl.is Handritshöfundar sömdu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er hræðilegt

Guð minn góður, ég bið til Guðs um að maðurinn finnist á lífi.
mbl.is Leitað að flugvélinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Freddy Mercury samkynhneigður...já

Mér finnst nú ekki skrítið að Brian May hafi ekki vitað af samkynhneigð Freddys þar sem að það var nú ekki áberandi hjá Freddy kallinum. Ekki það að það sé eitthvað alltaf áberandi hjá fólki þeirra kynhneigð.:) En ef ég dýrka eitthvað að þá er það hljómsveitin queen og hvað þá með Freddy Mercury...? I love him.Tounge Mér finnst synd að hann hafi látist svona ungur.Blush Ef hann hefði lifað lengur að þá hefði ég sko farið á tónleika með þeim og ég hefði sko borgað hvað sem er fyrir það, belive you me.Grin En eitt að lokum: Mér fannst flott hjá Freddy að láta aðdáendur sína ekki vita að hann væri dauðvona fyrr en einungis 2 dögum áður en hann lést...enda kemur það svosem aðdáendum ekkert við þannig séð. En folks, hafið það gott í dag.Cool

 

 


mbl.is Vissi ekki að Freddy Mercury væri samkynhneigður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandið hans Bubba

Ætla ekki alveg örugglega allir að horfa á bandið hans Bubba í kvöld? Það verður sko kunnulegt andit þar á ferð. ;) Hún Birna Sif mín verður í þessum þætti.:) Ég get ekki beðið. Hún er búin að standa sig svo vel, hún á eftir að komast langt í þessari keppni, ef ekki vinna.Grin  Þátturinn byrjar kl 20:40 og það verður sko sameinað á allanum til að horfa með Birnu og co.

Þetta er snilld!

Þetta er frábært hjá þeim. :) Þetta er eina almennilega útvarpsstöðin á landinu finnst mér. Fm 957 er ekki að gera nógu góða hluti þar sem að sama lagið heyrist oft 3-4 sinnum á klukkutíma sem getur verið mjög þreytandi.Pinch Létt er fín í smátíma en ekki of lengi, rás 2 er fyrir eldra fólkið og rás 1 fyrir ennþá eldra fólk...þetta er allavega mín skoðun og ekkert ílla meint til útvarpstöðvanna.Smile En Voice 987 er með svo fjölbreytta tónlist, þessi stöð er bara æði.Smile Til hamingju all the world...hehe...Wink 

Hvað finnst ykkur þarna úti um þessa stöð?


mbl.is Netútvarpsstöð á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband